- Esjan Verktakar
Rétti aðilinn fyrir þitt verk
Hvort sem þú þarft málara, smiði, múrara eða flísara, þá leysum við málið. Allir iðnaðarmenn á einum stað, frá ráðgjöf til afhendingar.
01
- Allir iðnaðarmenn á einum stað
Allt á einum stað. Engin þörf á að ráða fjóra mismunandi verktaka.
02
- Vönduð og fagleg vinnubrögð
Hvert verk er skoðað og samþykkt á hverjum áfanga.
03
- Áreiðanleiki og skil á réttum tíma
Við skilum verkinu á þeim degi sem við lofum, samkvæmt tilboðinu sem við sendum.
04
- Stór og smá verkefni
Þeir staðlar sem stóru verkkaupar krefjast, hvort sem verkefnið er stórt eða smátt.
Reynsla, fagmennska og heildarlausnir á einum stað
Esjan Verktakar ehf var stofnað 1. maí 2023 og er fjölbreytt verktakafyrirtæki sem leggur áherslu á gæði, áreiðanleika og góð samskipti í hverju verki.
Hjá Esjunni starfa málarar, smiðir, múrarar og flísarar — allir reynslumiklir iðnaðarmenn á sínu sviði. Með okkur í liði eru húsasmíðameistari, múrarameistari, málarameistari og byggingastjóri, ásamt um tíu launamönnum sem hafa starfað hjá okkur í lengri tíma. Þannig getum við tekið að okkur fjölbreytt og krefjandi verkefni, hvort sem þau eru stór eða smá, og skilað þeim í heild frá upphafi til enda.
Við vinnum með traustum fagaðilum eins og Reitum, Verksýn og Landspítalanum, og leggjum okkur fram við að mæta kröfum og væntingum hvers viðskiptavinar, hvort sem um er að ræða stóran verkkaupa eða einstakling.
Hafðu samband og við gerum þér kostnaðarlaust tilboð í verkið.
Gæði í verki
Við tryggjum gæði í verki með vandvirkni, fagmennsku og áreiðanleika í hverju skrefi verkefnisins.
Heildarlausnir
Fagleg byggingarþjónusta — heildarlausnir í einum pakka.
01
Þakvinna
Nýbygging og viðhald þaka. Vönduð frágangur sem stenst íslenska veðráttu.
02
Málningarvinna
Innan- og utandyra. Undirvinnan ræður útkomunni.
03
Smíðavinna
Sérsmíðar, innréttingar, viðhald. Allt frá eldhúsi til þakviða.
04
Múrvinna
Frá sökklum til pússaðra veggja. Sterkir, beinir, endingargóðir veggir.
05
Flísavinna
Bað, eldhús, gólf, nákvæmlega lögð, vandlega fúguð.
06
Viðgerðarþjónusta
Lítil verkefni unnin fljótt og vandað. Lekur úr þaki? Skemmd flís? Hringdu.
Reynsla og gæði sem skila niðurstöðum
-
Áratuga reynsla
Við höfum áratuga reynslu og tryggjum hágæða vinnu sem skilar áreiðanlegum niðurstöðum.
-
Persónuleg og skilvirk þjónusta
Við vinnum náið með viðskiptavinum og tryggjum persónulega og skilvirka lausn fyrir hvert verkefni.
-
Vönduð framkvæmd
Vandað og nákvæmt vinnuferli tryggir gæði í hverju skrefi verkefnisins.
-
Áreiðanlegt samstarf
Fagmennska og reynsla tryggja áreiðanlega og vandaða þjónustu í öllum byggingarverkefnum.
Áreiðanlegt ferli fyrir hvert verkefni
Við hjá Esjan Verktökum tryggjum árangur með skýru ferli: ráðgjöf, undirbúning, framkvæmd, lokaskoðun og eftirfylgni til að skila hágæða og áreiðanlegu verkefni.
Við byrjum á að hlusta á þarfir þínar, veitum faglega ráðgjöf og gerum nákvæma áætlun.
Skipulagning og undirbúningur eru lykill að góðu verkefni. Við tryggjum að allt sé tilbúið áður en framkvæmdir hefjast.
Reynslumiklir iðnaðarmenn okkar framkvæma verkið með nákvæmni, gæðum og öryggi.
Við yfirförum verkið, tryggjum að allt uppfylli væntingar og afhendum fullkomið verkefni.
Tilbúin að hefja næsta verk? Hafðu samband við okkur
Algengar spurningar
Öll byggingarverkefni — þakvinnu, málningu, smíði, múrverk, flísalögn, viðgerðir og endurbætur. Bæði fyrir einstaklinga og fyrirtæki.
Hvert verk er skoðað og samþykkt á hverjum áfanga. Þú færð uppfærslur í gegnum allt verkefnið, og við vinnum með reynslumiklum iðnaðarmönnum sem allir eru með sveinsbréf eða meistarabréf.
Það fer eftir umfangi og flækjustigi. Við gerum tímaáætlun í tilboðinu og upplýsum þig reglulega um framvindu.
Já. Fyrsta heimsókn og kostnaðarmat er kostnaðarlaust og án skuldbindingar.
Já. Lögboðin ábyrgð gildir á öllum verkum okkar samkvæmt mannvirkjalögum, og við erum áfram til staðar fyrir viðhald og spurningar eftir afhendingu.